1.12.2008 | 17:34
Handtaka liðið, gengið allt of langt.
Lögreglan þarf greinilega að fara að taka mun harðar á þessu liði. Hreinlega handtaka það og kæra.
Þetta er alveg til skammar hvað fámennur hópur vitleysinga gerir og í ofanálag setja þeir svartan stimpil á alla mótmælendur sem vilja hafa hlutina friðsama og skynsama.
Fær mann nánast til að skammast sín fyrir að vera íslendingur þegar maður sér fólk gera slíka hluti, engan veginn réttlætanleg, sama hvernig á það er litið. Það er ekkert að gerast í þjóðfélaginu sem getur réttlætt slíkt.
Mótmælendur farnir út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Carl Jóhann Granz
Færsluflokkar
Bloggvinir
- baldher
- benediktae
- bogl
- bjarnihardar
- gattin
- doggpals
- ellamagg
- emilkr
- erla
- ea
- frjalshyggjufelagid
- grazyna
- gunnargunn
- gudbjorng
- gylfithor
- gustaf
- bordeyri
- hjaltisig
- golli
- bassinn
- lax
- kristjangudm
- morgunbladid
- mfo
- reynir
- rosaadalsteinsdottir
- fullvalda
- sjonsson
- stebbifr
- athena
- theodor
- tomasha
- ubk
- arniarna
- astamoller
- publicservant
- hugsun
- thj41
- egill
- gauisig
- fiski
- jonmagnusson
- sumri
- otti
- valdimarjohannesson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvers vegna að handtaka fólk sem er ekki að eyðileggja eða ógnandi?
Það æsir hópinn bara upp í múg og þá verða fyrst vandræði.
Karma (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 17:43
Stjórnarliðið þýlynda og sofandi og þjófavinir þeirra er það sem fær mann til að skammast sín fyrir að vera íslendingur, ekki fólkið sem vill gera eitthvað í málunum og lætur í sér heyra. Burt með spillingarhyskið.
Georg P Sveinbjörnsson, 1.12.2008 kl. 17:44
Ég gat ekki betur heyrt en að þetta lið hefði verið einmitt ógnandi með inngöngu sinni þarna og eyðileggjandi með því að kasta eggjum og rauðri málningu upp um veggi.
Carl Jóhann Granz, 1.12.2008 kl. 17:46
Ég skammast mín fyrir fólk eins og þig
Heiða B. Heiðars, 1.12.2008 kl. 17:48
Sófafasistarnir leynast víða...
Löggan stóð sig vel, Jón Geir kann þetta... eitthvað annað en hvolpurinn hans Björn Bjarna
Einnar línu speki, 1.12.2008 kl. 17:50
Það ætti nú að handtaka þig frekar fyrir að styðja ekki málstað þeirra sem eru að reyna að láta í sér heyra en ekki láta vaða yfir okkur eins og hefur verið gert í áraraðir.
Get ekki séð afhverju ætti að handtaka ólk fyrir að kalla á mann og vera í situmótmæli og egg sem hægt er að þrífa í burt.
Atli Jóhann Guðbjörnsson (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 17:55
Ég styð fólk sem mótælir, alveg heilshugar. Tel að það veiti ríkisstjórninni mikið aðhald þessar vikurnar.
En þetta bull niður í seðlabanka er ekki hægt að styðja. Gerir engum neitt gott á neinn hátt.
Carl Jóhann Granz, 1.12.2008 kl. 17:58
Ég er þessi týpiski sem styð ekki öfga.
Carl Jóhann Granz, 1.12.2008 kl. 18:37
Þér finnst sem sagt að lögreglan hefði sem sagt átt að handtaka hundrað manns til að finna einn eða örfáa sem köstuðu eggjum? Gott að þú styður ekki öfgar.
Geir Jón sagði sjálfur að skemmdir hefðu ekki verið unnar á byggingunni og ekkert yrði gert á meðan fólk væri ennþá friðsamlegt.
Geir Jón tók vel á þessu máli enda leystist staðan fljótt og án átaka. Ef lögreglan hefði byrjað að vaða inní hópinn og handtaka fólk hefði þetta pottþétt ekki endað svona friðsamlega.
Samt grunar mig að innst inni sé fólk eins og þú að vonast til að það komi til átaka til þess að geta fordæmt þetta "lið".
Karma (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 10:06
Þetta tilvik endaði sem betur fer allt vel og mómælendur sættust á að yfirgefa svæðið. Það kom svo í ljós að eggjakast og málningaslettur voru í algeru lágmarki.
Geir Jón tók flott á þessu, en hefði aldrei þurft að ganga svona langt til að byrja með.
Ég vona svo innilega að það verði ekki meira af svona mótmælum, það hefur ekki sýnt sig hingað til að það skili neinu góðu þegar upp er staðið. að því best ég veit.
Það sem ég vildi helst sjá er eitthvað uppbyggilegt sem þjóðin getur sameinast um til að vinna sig í gegnum komandi erfiðleika.
Carl Jóhann Granz, 2.12.2008 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.